Vertu velkomin á heimasíðu áhugahóps um Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri. Á þessari síðu höfum við safnað saman efni og greinum sem hópurinn hefur sent frá sér og efni frá öðrum sem tengjast þessu máli. Endilega lestu að vild og segðu þína skoðun, því umræða er nauðsynleg. Hjálpaðu okkur að gera þessa síðu lifandi og gagnlega þeim sem láta sig þetta mál varða. Bestu kveðjur, áhugahópur um Bes
Endurbætur við Barnaskólann á Stokkseyri
Skrifað ágúst 6, 2006 af ahugahopurFlokkar: Vefgreinar
Endurbætur standa nú yfir við Barnaskólann á Stokkseyri.
Verið er að skipta um glugga í húsinu og full þörf á enda orðað þannig á framkvæmdastað “ að þeir hafi ekki verið á vetur setjandi.”
Það eru tvö fyrirtæki á Selfossi sem sjá um framkvæmdir. Fyrirtæki Gísla Á. Jónssonar og Guðmundar Kr. Jónssonar
(www.stokkseyri.is 2.ágúst 2006)
Til hamingju Eyrarbakki !!!
Skrifað júlí 30, 2006 af ahugahopurFlokkar: Vefgreinar
Það er ástæða fyrir Eyrbekkinga að fagna um þessar mundir. Á fundi bæjarráðs Sveitarfélagsins Árborgar 20. júlí sl. var lögð fram framkvæmdaáætlun um uppbyggingu skólahúsnæðis fyrir Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri í báðum þorpum. Í framkvæmdaáætlunni segir m.a.:
„Verkefnið er tvíþætt:
a) Byggja upp húsnæði fyrir skólahald á báðum stöðum með aðstöðu fyrir 6. til 10. bekk á Eyrarbakka (1. áfangi) og aðstöðu fyrir 1. til 5. bekk á Stokkseyri (2. áfangi). Áætlað er að bjóða 1. áfanga verksins út í lok árs 2006 og 2. áfanga í lok árs 2008.
b) Auka strax við húsnæði á Eyrarbakka fyrir kennslu og draga úr akstri með nemendur milli staðanna.
…
Tímaáætlun sem notuð er til viðmiðunar er svohljóðandi:
1) Þarfagreining og rýmisáætlun: Lokið 1. okt. 2006.
2) Ákvörðun um framgangsmáta útboðs: 15. okt. 2006.
3) Alútboð 1. nóvember 2006.
4) Ef ekki alútboð:
a. Útboð hönnunar 1. nóv. 2006.
b. Hönnun lokið 1. mars 2007.
5) Framkvæmdaútboð: 15. mars 2007.
6) Útboð á búnaði: 15. febrúar 2008.
7) Verklok 1. áfanga: 15. júlí 2008.
Verklok 2. áfanga: 15. júlí 2010.
…
Meirihlutinn stendur fast við þá framkvæmdaáætlun sem hér er sett fram.
Bæjarfulltrúar B og D lista.“
Það er full ástæða til þess að fagna því að núverandi meirihluti bæjarstjórnar Sveitarfélagsina Árborgar skuli standa við þá ákvörðun um uppbyggingu BES sem fyrrverandi bæjarstjórn tók 10. maí sl.
Nú verða Eyrbekkingar og Stokkseyringar að snúa bökum saman og styðja við bakið á starfsmönnum skólans og skólayfirvöldum í sveitarfélaginu við að byggja upp góðan skóla í báðum þorpum. Það er grunnurinn að öflugri framtíð Eyrarbakka og Stokkseyrar!
Magnús Karel Hannesson (www.eyrarbakki.is 26.júli 2006
Uppbygging Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri
Skrifað júlí 28, 2006 af ahugahopurFlokkar: úr fundargerðum Árborgar
fundi bæjarráðs 21. júlí sl. voru lögð fram svör við fyrirspurn Jóns Hjartarsonar varðandi uppbyggingu Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri. Þar kemur fram að verkið er tvíþætt.a) Byggja upp húnsæði fyrir skólahald á báðum stöðum með aðstöðu fyrir 6. til 10. bekk á Eyrarbakka (1. áfangi) og aðstöðu fyrir 1. til 5. bekk á Stokkseyri (2. áfangi). Áætlað er að bjóða 1. áfanga verksins út í lok árs 2006 og 2. áfanga í lok árs 2008.
Þarfagreining hefur verið unnin á framkvæmda- og veitusviði og verður hún nýtt til að fullgera endanlega rýmisáætlun fyrir skólahald á stöðunum. Þegar rýmisáætlun liggur fyrir verður gerð tillaga um framgangsmáta við útboð fyrir 1. áfanga, en reiknað er með að tímasetning útboðs miðist við það að ný skólabygging verði tekin í notkun að hausti 2008. Gera má ráð fyrir um 12 mánaða framkvæmdatíma. Útboð á 2. áfanga tekur mið af afhendingartíma bygginga. Tímaáætlun sem notuð er til viðmiðunar er svohljóðandi:
1) Þarfagreining og rýmisáætlun: Lokið 1. okt. 2006
2) Ákvörðun um framgangsmáta útboðs: 15. okt. 2006
3) Alútboð 1. nóvember 2006
4) Ef ekki alútboð:
a. Útboð hönnunar 1. nóv
b. Hönnun lokið 1. mars 2007
5) Framkvæmdaútboð: 15. mars 2007
6) Útboð á búnaði: 15. febrúar 2008
7) Verklok 1. áfanga: 15. júlí 2008
8) Verklok 2. áfanga: 15. júlí 2010
Endurmeta þarf tímaáætlun ef leggja þarf í sérstakt skipulagsferli (deiliskipulag).
b) Auka strax við húsnæði á Eyrarbakka fyrir kennslu og draga úr akstri með nemendur milli staðanna.
Gert er ráð fyrir því að setja upp tvær færanlegar kennslustofur á Eyrarbakka. Á Stokkseyri er gert ráð fyrir að koma tónlistarkennslu fyrir í Gimli og setja upp þráðlaust tölvukerfi í skólabyggingunni fyrir færanlega tölvuvagna til tölvukennslu. Jafnframt er gert ráð fyrir úrbótum á skólalóðum og uppsetningu skýla fyrir nemendur sem ekið er til skóla. Vinnan fram að þessu hefur farið í að kanna hvenær birgjar geti skaffað það sem til þarf og meta og undirbúa verkþætti. Verkþættir á Stokkseyri ættu að vera yfirstaðnar í byrjun skólaárs en á Eyrarbakka eru verklok áætluð um nk. áramót.
4.fundur bæjarráðs 21.júli 2006
Bjarni Harðarson skrifar: Af íbúalýðræði og skyldum bæjarstjórnar
Skrifað júlí 21, 2006 af ahugahopurFlokkar: Greinar í blöðum
Einar úti í mýri
Skrifað júlí 19, 2006 af ahugahopurFlokkar: Uncategorized
Varðandi grein eftir Einar Elíasson hér á vefnum um skólamál BES. Eftir að hafa lesið greinina efumst við stórlega um að Einar viti um hvað málið snýst. Hann heldur því fram að 400 íbúar Eyrarbakka og Stokkseyrar hafi verið narraðir til að skrifa undir lista til að koma skólunum úr byggð og úti mýri(er Borgarlandið úti mýri?) og að fólkið sem að stóð að söfnun þessara undirskrifa láti sig menntun og hag barnanna engu skipta heldur aðeins staðsetningu á skólahúsnæði. Viljum við því upplýsa Einar um eftirfarandi. Tilgangurinn með þessum undirskriftalista var einfaldlega að fá fram kynningu og kosningu um skólamálin, kynningu um hvernig uppbyggingin eigi að vera nákvæmlega og hvorki núverandi né fyrrverandi meirihluti hefur getað skýrt almennilega. Svona lítur undirskrifalistinn út sem Einar heldur fram að 400 manns hafi verið narraðir til að skrifa undir, að segja það, er einfaldlega ein stór móðgun við alla þá sem undir skrifuðu!
Íbúalýðræði
Við undirritaðir íbúar Árborgar skorum á nýja bæjarstjórn að láta fara fram sem fyrst kosningu um húsnæðismál Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri meðal íbúa í því skólahverfi.
Áður en kosning færi fram yrðu þeir tveir valkostir sem koma til greina rækilega kynntir bæði með faglegum og fjárhagslegum rökum, einnig hvernig staðið yrði að uppbyggingu beggja valkosta. Í báðum tilfellum yrði m.v. fullbúin skólahús með sundlaug og íþróttaaðstöðu.
Valkostirnir eru:
Einn heilstæður grunnskóli miðsvæðis, m.v. 1-10. bekk.
Byggja upp húsnæði fyrir skólann á báðum stöðum, m.v. skiptan nemendahóp.
Nafn Kennitala Heimili
Ennfremur sýnist okkur að Einar hafa ekki vitað eftirfarandi: skólinn er aldurskiptur, á Eyrarbakka eru eldri börn, á Stokkseyri þau yngri, skólastarfið er í 9 einingum með tilheyrandi kostnaði, bæði skólahúsin eru rekin á undanþágu frá heilbrigðiseftirliti, krakkarnir eru í rútum á milli staða til að komast í tíma, oft í sínum frímínútum og eru skornar af 5 mínútur hér og þar til að það gangi, krakkarnir borða matinn sinn úr bökkum fyrir framan klósettin á Eyrarbakka, vinnuhópur (sem skólanefnd hafði frumkvæði af að stofna) átti að finna út hagkvæmustu staðsetningu til framtíðar og vilja íbúanna og skilaði vinnuhópurinn afgerandi niðurstöðu, einn skóli miðsvæðis, en skólanefndin gekk þvert á niðurstöðu hópsins.
Á Eyrarbakka eru 30 ára gömul útistofur “bráðabirgðalausn” á Stokkseyri vex gróður í gluggum á annari hæð, bæjaryfirvöld segjast ekki fá neitt (eða ekki mikið) fyrir þessi húsnæði, en þau eru nógu góð fyrir börnin á ströndinni. Hefði Einar vitað allt þetta áður en hann skrifaði greinina þá hefði hann líka vitað að eina sem vakir fyrir fólkinu sem skrifaði undir listann, er hagur barnanna og bæjanna. Vonum við að Einar kynni sér málið aðeins betur og virði það fólk sem skrifaði undir þessa lista, fólk sem berst fyrir því að börnunum líði vel og að hagur bæjanna verði sem mestur.
Stokkseyri 11.júli 2006
Áhugahópur um skólamál BES.
Heimild:www.stokkseyri.is
Köttur út í mýri
Skrifað júlí 19, 2006 af ahugahopurFlokkar: Uncategorized
Einar Elíasson á Selfossi skrifar:
Ég las grein í einhverju blaði nýlega eftir Stokkseyring, sem skrifaði gegn uppbyggingu skólana á Stokkseyri og Eyrarbakka og varð hissa og síðar sá ég sama efni á Stokkseyrasíðunni og varð enþa meira hissa.
Þetta á netinu er reyndar svo grautarlegt að það er varla skiljanlegt, en hvað um það málið snýst um staðsetningu nýrra skólabygginga, annað tveggja að byggja upp bæði á Stokkseyri og Eyrabakka eða á nýjum stað milli þorpanna.
En skólabygging er eitt, en skólastarf og menntun er annað, mér skilst að málið snúist ekki um það, sem er nú kannski aðalatriðið, það kemur allavega ekki fram. Heldur um hvar hús eigi að standa. Hvort það eigi að keyra krakkana alla, alltaf í skólann af því hann er svo langt í burtu, eða bara stundum af því skólinn er í göngufæri. Einu sinni var byggt Sjúkrahús Suðurlands mitt á milli þorpanna, löngu áður en Selfoss varð til, það er gamla burstabyggingin á Litlahrauni, Eyrbekkingar færðu skólann sinn þangað skömmu síðar því þangað átti byggðin að færast. Hefði ekki gosið í Vestmanneyjum væri skólinn líklega enn langt fjærri byggð.
Þó framsýni sé góð og nauðsýnleg, lætur þróunin stundum bíða ansi lengi eftir sér, svo gæti orðið með byggð að nýjum skóla út í mýri, en hvað sem því liði væri alltaf jafn langt úr gömlu byggðunum í skóla milli þorpanna.
Nýtt heimsmet.
En skyldi það geta gerst annarstaðar en í Flóanum að íbúarnir safni undirskriftum í baráttu sinni við að leggja niður barnaskólana í sínum heimabyggðum, varla! En það er einmitt að eiga sér stað á Stokkseyrar og Eyrabakka núna, já núna þessa dagana árið 2006, ótrúlegt. Þar er fólk sem berst með kjafti og klóm fyrir því að leggja barnaskólana niður á þessum stöðum. Hingað til hefur það verið talin undirstaða þess að hægt sé að kalla bæ byggilegan að þar sé barnaskóli starfandi og íbúarnir lagt mikið á sig svo hann mætti þrífast sem best. Það vissu Eyrbekkingar árið 1852 þegar þeir komu Barnaskóla Eyrarbakka á legg, sem nú er elsti starfandi barnaskóli landsins.
Maður er löngu hættur að kippa sér upp við hið svokallaða “ íbúalíðræðið,, sem þröngsýnin skýlir sér ábakvið í mótmælum sínum gegn nútímanum, svo sem nútímalegum byggingastíl, flugvöllum og upp til hópa verklegum framkvæmum, það er orðin lífstíl að mótmæla og þykir töff. En að vilja barnaskólann burt úr sínum heimabæ, og koma honum eitthvert út í mýri, það er nýtt, hefur ekki heyrst áður og ætti að skrá í heimsmetabók Guinness, sem heimsmet í Flóamennsku. Það er ekkert óeðlilegt að gömlum komma detti svona vitleysa í hug í kosningadraumum sínum um völd og frama, það er ekki einu sinni svaravert, en að fjögurhundruð íbúar í byggðunum sjálfum skuli með undirskriftum sínum reyna að knýja á að kosið verði um málið, það er undrunarefni og það af því að Bæjarstjórn Árborgar tók þá hár réttu ákvörðun að endurbyggja skólana, bæði á Stokkseyri og Eyrabakka, þó það sé dýrari lausn, annað hefði verið skömm og lítilsvirðing bæði við fortíð og framtíð þessara öldnu og virðulegu byggðakjarna. Að geta narrað 400 manns til að skrifa undir þetta eru hreinlega rannsóknarefni mannfræðinga og atferlisfræðinga.
Fólki á að sjálfsögðu eftir að fjölga í þessum byggðlögum báðum all hratt í nánustu framtíð, ekki síst vegna nýrrar hugsunar í búsetuvali og þorpin ná saman með tíð og tíma og teiga sig upp með Eyrabakkaveginum upp á móti Selfossi og Frístundabyggðum í mýrinni, en það tekur að sjálfsögðu nokkra áratugi, þá verður þörf á þriðja skólanum, út í mýri,en látum framtíðina um hann.
Nú er að sjá hvort núverandi bæjarstjórn linbast niður fyrir skammsýnisöflunum, eins og sú síðasta gerði í miðjumálinu á Selfossi, sjálfri sér og Selfossi til skaða og skammar.
Selfossi 10. júlí 2006
Einar Elíasson
Heimild:www.Stokkseyri.is
Inga Lára Baldvinsdóttir frá Eyrarbakka skrifar um skólamálin
Skrifað júlí 19, 2006 af ahugahopurFlokkar: Uncategorized
Við skólaslit Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri í júníbyrjun hvatti Arndís Harpa Einarsdóttir skólastjóri íbúa í þorpunum tveimur til að standa saman að baki endanlegri niðurstöðu um uppbyggingu nýs skólahúsnæðis fyrir skólann. Sú niðurstaða liggur fyrir og hefur gert um nokkra hríð.
Skólanefnd Sveitarfélagsins Árborgar ályktaði um málið á fundi sínum 20. febrúar 2006 og komst að þeirri niðurstöðu samkvæmt fundargerð „að byggt verði upp fullnægjandi skólahúsnæði í báðum þorpum”. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkti síðan á fundi sínum 10. maí sl. svo vitnað sé til fundargerðar að „byggja upp húsnæði fyrir skólann, bæði á Eyrarbakka og Stokkseyri. Byggingar á hvorum stað verða miðaðar við fullbúin skólahús og skiptan nemendahóp eins og er í dag.” Að þessari samþykkt stóðu 8 bæjarfulltrúar meirihluta og minnihluta, þ.e. 2 fulltrúar Framsóknarflokks, 4 fulltrúar Samfylkingar og 2 fulltrúar Sjálfstæðisflokks. Niðurstaðan lá því fyrir áður en gengið var til sveitarstjórnarkosninga.
Þeir listar sem buðu fram krafta sína í sveitarstjórnarkosningunum höfðu flestir skýra stefnu um framtíð skólamála á Eyrarbakka og Stokkseyri í kosningabaráttunni. Þar voru fleiri en einn valkostur í boði; uppbygging nýs skóla í nýju fyrirhuguðu þorpi á milli þorpanna og uppbygging í báðum þorpum. Eitt þeirra mála sem kosið var um í síðustu sveitarstjórnarkosningum voru því skólamál á Eyrarbakka og Stokkseyri. Niðurstaða í þeim kosningum liggur fyrir.
Það er tímabært að snúa sér að uppbyggingu betri skóla á Eyrarbakka og Stokkseyri. Það verður ekki bara gert með steinsteypu. Það er gert með samfélagslegu átaki allra sem að málinu koma. Ekki aðeins nemenda, foreldra og kennara heldur samfélagsins alls. Það jákvæða sem komið hefur út úr þeirri umræðu sem fram hefur farið um málið er að fólk lætur sig málefni skólans varða. Gæði skólastarfs eru ekki fólgin í steypu heldur í metnaðarfullu skólastarfi og það viljum við öll hafa í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Heimild: sudurland.net
3.fundur bæjarráðs 13.júlí 2006
Skrifað júlí 14, 2006 af ahugahopurFlokkar: úr fundargerðum Árborgar
Hérna eru athyglisverðir punktar af þessum fundi;
4. 0607026
Uppbygging BES – Bráðabirgðaaðgerðir 2006 – tillaga frá framkvæmdastjóra framkvæmda- og veitusviðs
Bæjarstjóra falið að afla frekari gagna áður en málið er afgreitt.
og
17. 0606043
Uppbygging Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri – ítrekun fyrirspurnar frá Jóni Hjartarsyni V lista
Bókun vegna fyrirspurnar á bæjarráðsfundi 22. júní 2006.Á bæjarráðsfundi þann 22. júní 2006 lagði undirritaður fram 4 spurningar vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri. Nú eru liðnar 3 vikur síðan fyrirspurnin var borin fram og ekkert svar enn borist.
Þar sem ekkert svar hefur borist né nokkur skýring á drætti svarsins er fyrirspurnin ítrekuð og óskað eftir svari eigi síðar en á næsta fundi bæjarráðs.
Jón Hjartarson frá V lista.Verið er að vinna svar við fyrirspurninni en hefur tafist vegna sumarleyfa.
Semsagt, bráðabirgðalausnir fyrir BES eru í “athugun” og Jón Hjartarson hefur ekki ennþá fengið að sjá framkvæmdaráætlunina fyrir uppbyggingu BES sem notuð var sem afsökun þá fyrir því að hunsa undirskriftalista 400 íbúa strandabæjanna ” ..Meirihlutinn er fastákveðinn í því að fylgja samþykktri framkvæmdaáætlun.. ” eins og meirhlutinn sagði 22.júni 2006! Við spyrjum því ef framkvæmdaráætlun var til 22.júni þá hvar er hún nú tæpum mánuði síðar? Og hvaða bráðabirgðalausnir eru þarna á ferðinni? Er þetta uppbyggingin? Hvað koma sumarleyfi þessu við?
Áhugahópur um skólamál BES
Skrifað júlí 8, 2006 af ahugahopurFlokkar: Greinar í blöðum
![]()
Eins og margir orðið vita voru undirskriftarlistar strandabúa varðandi skólamál BES hunsaðir af sitjandi meirihluta ,bænaskjal íbúa um að fá almennilega kynningu á uppbyggingu skóla í þeim hverfum og jafnframt kosningu. Fram til þessa dags hefur Margrét Erlingsdóttir(B) sem er jafnframt formaður skólanefndar haldið því á lofti að sú ákvörðun sem tekin var, sé vilji íbúanna, sem er að sjálfsögðu ekki rétt, það sannar undirskriftarlistinn þar sem um 400 manns skrifuðu undir sem er um 50% kosningabærra íbúa, einnig skoðanakönnun á Suðurland.is þar sem 54% vildu einn skóla miðsvæðis og 33% vildu byggja upp á báðum stöðum og niðurstaða vinnuhópsins sem var afgerandi með einum skóla miðsvæðis.Ef Margrét heldur því fram að að skoðanakönnun sem gerð var þann 10.apríl á illa kynntum og illa auglýstum fundi þar sem 48 einstaklingar í heild sinni gáfu álit sitt, endurspegli vilja íbúanna,þá spyrjum við, hversu hæf er hún til að sinna þessu starfi? Er ekki verið að gleyma því hver vinnur fyrir hvern? Það er alveg með ólíkindum hvernig formaður skólanefndar hefur unnið að þessu máli , það er engu líkara en hún mati samstarfmenn og aðra af upplýsingum sem henta hverju sinni til að fá sínu framgengt. Því viljum við koma eftirfarandi á framfæri:
Í fundargerð skólanefndar þann 22.11.2004 segir: Skólanefnd leggur til að farin verði svipuð leið og gert var við undirbúning um byggingu Sunnulækjarskóla. Skólanefnd telur mikilvægt að íbúar við ströndina, starfsmenn skólans og þeir sem láta sig málið varða geti tekið þátt í verkefninu.
Beðið var um tilnefningu frá eftirtöldum aðilum:
2 fulltrúar skólanefndar Grunnskóla Árborgar.
2 fulltrúar stjórnenda í B.E.S.
2 fulltrúar kennara í B.E.S.
2 fulltrúar annarra stafsmanna B.E.S.
2 fulltrúar foreldrafélags B.E.S.
1 fulltrúi atvinnulífs; Hrútavinafélagið Stokkseyri.
1 fulltrúi atvinnulífs; Endurreisnarfélagið Eyrarbakka.
Að auki var auglýst eftir áhugasömu fólki til að taka þátt, hópurinn var alls 22 einstaklingar.
Við upphaf vinnu verkefnahópsins voru sett fram eftirfarandi markmið:
Að starfsmenn Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri ásamt öðrum íbúum Sveitarfélagsins Árborgar setjist niður og fjalli um framtíðarstarf og aðstöðu barnaskólans.
Að vinna verkefnishópsins endurspegli sýn íbúa á hvar og hvernig skuli byggja upp aðstöðu til framtíðar.
Að koma með niðurstöðu sem nýtist bæjaryfirvöldum við ákvarðanatöku um framkvæmdir.”
Heimild: skýrsla Sigurðar Bjarnasonar” Hugmyndavinna um framtíðarskipan húsnæðismála Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Niðurstaða þessa vinnuhóps var sú, að afgerandi meirihluti hópsins valdi nýjan skóla miðsvæðis og fór fram kosning innan þessa hóps sem fór eftirfarandi: 14 vildu byggja nýjan skóla miðsvæðis og 4 vildu byggja upp á báðum stöðum En svo kom að afgreiðslu skólanefndar á fundi sem haldinn var 20. febrúar 2006 þar sem þessi niðurstaða var kynnt, þar samþykkti skólanefnd undir forsæti Margrétar Erlingsdóttir eftirfarandi ályktun:
“Ályktun skólanefndar um húsnæðismál BES
Skólanefnd Árborgar hefur yfirfarið skýrslu vinnuhóps um framtíðarskipan húsnæðismála Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri. Nefndin hefur ákveðnar efasemdir um þá lausn sem meirihluti hópsins mælir með, að byggja nýjan skóla á milli þorpanna. Sú lausn gengur gegn þeim vilja íbúanna sem fram kom á íbúaþingi 2003, en þar var lögð rík áhersla á að skólastarf yrði áfram í báðum þorpum.
Skólanefnd mælir með að byggt verði upp fullnægjandi skólahúsnæði í báðum þorpum. Hafist verði handa sem allra fyrst. Skólanefnd mælir jafnframt með að framkvæmdir verði aðeins á öðrum staðnum í einu.
Skólanefnd bendir á að íbúafundur við ströndina gæti verið heppilegur til að kynna niðurstöður skýrslunnar”
Til hvers voru þeir að eyða tíma í þennan vinnuhóp, var það einungis sýndarmennska?
Kom vinnuhópurinn sem skólanefnd hafði frumkvæði af að stofna með “ranga niðurstöðu”? Og það að vitna í íbúaþing sem haldið var 2003 og halda því fram að þar hafi vilji íbúanna verið að byggja upp á báðum stöðum,það er einfaldlega rangt, þar kom aðeins fram vilji íbúanna um að skólamálin væru löguð sem fyrst. Niðurstaða þessa vinnuhóps hefur ekki farið hátt, þessar skýrslur eru reyndar inni á Arborg.is en þar er með feitu letri viðhorfskönnun sem haldin var á íbúafundi þann 10.apríl s.l. en ekki kosning vinnuhópsins sem rétt hefði verið! Umræddur fundur var svo illa auglýstur að reynt var að bera fundarboð í öll hús kvöldið fyrir fundinn sem tókst reyndar ekki, þar var niðurstaða vinnuhópsins ekki svo mikið sem kynnt.
Valdnýðsla Margrétar sannaði sig á framboðsfundi í Fjölbrautaskóla Suðurlands þar sem hún tilkynnti að byggt yrði upp á báðum stöðum, og kom það mörgum að óvörum þ.m.t. starfandi meirihluta þar sem fundur um þessi mál átti að fara fram þriðjudeginum eftir, og var umræðan um skólamál þar, í framhaldi af þessu felld niður.
Svona einstaklingar eiga ekki að vinna í umboði kjósenda. Ætla framsóknarmenn að horfa á Margréti útrýma flokknum í þessu kjördæmi?
Slitnaði ekki upp úr meirihlutamyndun við vinstri flokkanna vegna þess að Margrét gat ekki sætt sig við það lýðræði, að leyfa íbúum að kjósa um þessi mál?
Einnig spyrjum við sjálfstæðisflokkinn, sem kennir sig við lýðræði, og hefur 4 bæjarfulltrúa, hvort hann ætli að taka þátt í þessari einkaherferð Margrétar eða hvort hann hafi það vit að hlusta á vilja íbúanna og stoppa þetta ferli nú þegar?
Ef við erum raunsæ þá er kostnaður pr.nemenda við ströndina þar sem BES er rekinn í 9 starfsstöðvum allt of hár í dag og ekki kemur hann til með að lækka við uppbyggingu á þessum hornskökku gömlu húsum sem eru næst því að vera fokheld og allir á undanþágum frá Heilbrigðisnefnd. Er einhver að spá í líðan barna okkar? Við íbúar við ströndina verður að fara að gera okkur grein fyrir því að við búum í hverfum Árborgar þar sem ásættanleg niðurstaða er að hafa góðann skóla í miðju þessara hverfa og hefur það einungis áhrif á byggðaþróun strandahverfa til batnaðar, en aftur í móti hefði það slæm áhrif á byggðaþróun þessara hverfa ef verður sem spáð er þ.e. að uppbyggingu ljúki á Eyrarbakka 2008 en þá verður kostnað pr. Nemenda óverjandi í öllu þessu aðahaldi sem framundann er, svo brugðið verður á það ráð að kenna 1.-7.bekk á Eyrarbakka og keyra 8.-10.bekk sennilega í nýjan skóla í Fosslandi sem stendur til að reisa. Hvað verður þá um byggðarþróun Stokkseyrarhverfis? Við spyrjum:
Væri það ásættanleg niðurstaða að hverfisskóli íbúa í Fosslandi yrði reistur hér við ströndina? Við höldum ekki. Að okkar mati var þessi hræðilega framtíðarsýn alltaf í kollinum á Margréti Erlingsdóttur, og því svona óeðlilega viðkvæmt fyrir hana að heimila kosningu því hvernig sem færi þá værum við kjósendur með það staðfest á blaði hvað ætti nákvæmlega að gera og gætum því unnið skipulega og ýtt á eftir að staðið yrði við þann samning.
Húrra fyrir lýðræðinu.
Áhugafólk um skólamál
(Birtist í fréttablaðinu 8.júlí og á stokkseyri.is og sudurland.net
